Fyrirtækið Reykjavik Economics hefur unnið skýrslu um efnahagsleg áhrif innflutningsbanns Rússlands á íslenska hagsmuni.
Í helstu niðurstöðum skýrslunnar segir að efnahagsleg áhrif innflutningsbanns Rússlands hér á landi geti orðið umtalsverð, en að hafa verði í huga að samdráttur ríki í efnahagsmálum Rússlands og að kaupmáttur fari þar minnkandi. Þá sé of snemmt að segja til um það hver áhrif verði af þeim mótvægisaðgerðum sem stjórnvöld hér á landi hafa gripið til vegna innflutningsbannsins.
Skýrslan er á ensku og segir þar meðal annars um áhrif bannsins: „It is difficult to estimate the total effect of the trade sanctions on the Icelandic economy with great accuracy as much depends upon the assumptions given concerning demand, supply and the financial impact on individual firms and segments of the labour market. It is clear, however, that the local effects on some municipalities are severe and the macroeconomic effects are considerable given the volume and prices of products exported to Russia in very recent years, especially if the trade sanctions are to continue into the longer future.“
Í lauslegri þýðingu segir að erfitt sé að segja til um skaðann en eigi að síður liggi fyrir að staðbundin áhrif á stök sveitarfélög geti orðið alvarleg og í heild fyrir þjóðarbúið umtalsverð, einkum ef banninu verði viðhaldið.
Skýrslan var unnin að beiðni samráðshóps stjórnvalda og hagsmunasamtaka á Rússlandsmarkaði, en í honum sitja fulltrúar frá forsætisráðuneyti, utanríkisráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarrráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Harðar deilur hafa skapast milli formanns Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, síðustu daga en ráðherra hefur látið hafa eftir sér í dag að samstaða sé í ríkisstjórn um að Ísland fylgi bandamönnum.
Skýrsluna má lesa í heild hér.