Rússabannið dýrkeypt bæjum úti á landi

Nokkur sveitarfélög verða fyrir umtalsverðu tekjutapi vegna innflutningsbanns Rússa. Líklegt er að makríll fari í auknum mæli í mjöl og lýsi en það lækkar bæði hafnargjöld og útsvarstekjur.
 

Fréttavefur RÚV fjallaði um þessa hagsmuni margra sveitarfélega úti á landi í gærkvöld, en Rússland hefur sem kunnugt er verið mikilvægur markaður fyrir heilfrystan makríl og fleiri uppsjávartegundir sem einkum og sér í lagi er unnar úti á landi. Mest af uppsjávaraflanum hefur verið unninn í Vestmannaeyjum, Hornafirði, Fjarðabyggð, Vopnafirði og á Þórshöfn í Langanesbyggð. Innflutningsbann Rússa mun valda þessum sveitarfélögum búsifjum. 

\"Fyrstu útreikningar benda til þess að þetta sé tekjutap hjá sveitarfélaginu í kringum 100 milljónir ekki undir því. Þá er ekki tekin inn þau óbeinu áhrif sem þetta mun hafa á ýmis fyrirtæki í sveitarfélaginu. Þetta felst í því að væntanlega eru þetta minni verðmæti sem er verið að vinna hjá okkur og það verður minni vinna og þar af leiðandi minni tekjur og minna útsvar. Þetta hefur þá líka áhrif á aflagjöld í hafnarsjóð,“ sagði Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð í samtali við RÚV. .

Minni tekjur koma illa við Fjarðabyggð sem eins og mörg önnur sveitarfélög vinnur að lögbundinni skuldalækkun. Sveitarfélagið hefði viljað vita fyrr um hvaða afleiðingar stuðningur Íslands við aðgerðir gegn Rússlandi gæti haft. 

„Á undanförnum árum hafa verið sett mjög stöng skilyrði um fjármálastjórn sveitarfélaga sem við teljum mjög af hinu góða. En við teljum líka að stjórnvöld verði að hafa meira samráð við okkur og gefa meiri fyrirvara þegar eru teknar ákvarðanir sem hafa svona mikil áhrif á okkar fjárhag. Þannig að við verðum að vita af þessu mikið fyrr og] svona ákvarðanir verða að vera upplýstar og það verður að vera búið að kann hvaða áhrif þær hafa þegar þær eru teknar hvaða áhrif það hefur meðal annars á fjárhag sveitarfélaga,“ sagði Páll.

Páll bindur vonir við að með einhverjum hætti verði hægt að létta höggið og fyrirtækin gera það með því að leita á ný mið eða nýja markaði með stjórnvöldum og að lausn finnist í málinu.