Rússar skoða viðskiptabann á ísland

Ísland er á lista sjö þjóða sem Dimitrí Medvedev forsætisráðherra Rússlands vill láta skoða hvort setja eigi á lista yfir þær þjóðir sem beittar verði viðskiptaþvingunum. Þetta tilkynnti hann í gærdag.

Í húfi eru allt að 25 milljarða króna viðskipti Íslendinga við Rússa, ekki hvað síst á uppsjávarfiski á borð við loðnu, síld og makríl, en fjölmörg sjávarútvegsfyrirtæki reiða sig á viðskiptasambandið við Rússa sem er hryggjarstykkið í starfsemi þeirra. 

Rússar hafa þegar bannað innflutning á vörum frá fjöldamörgum ríkjum, einkum í vestanverðri Evrópu eftir þau hófu þvingunaraðgerðir gegn Rússum í kjölfar innlimunar þeirra á Krímsskaga og hervaldi í austurhluta Úkraínu.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir að ráðuneytið sé að reyna að afla sér upplýsinga um það hversu mikil alvara sé í þessu hjá Rússum: \"Auðvitað veldur þetta áhyggjum. Við höfum haft áhyggjur af því allan tímann að lenda á viðskiptabannlista hjá Rússum,\" segir hann við Morgublaðið í dag.

Hin löndin sem Rússar íhuga nú að skella hurðinni á eru Noregur, Liechtenstein, Úkraína, Georgía, Albanía og Svartfjallaland. 

Þeirri skoðun hefur verið hreyft, meðal annars af Ásmundi Friðrikssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að Ísland eigi að taka sig af lista þeirra þjóða sem hafa mótmælt hervaldi Rússa í Úkraínu, svo miklir viðskiptahagsmunir séu í húfi fyrir land og þjóð. 

Birgir Ármannsson formaður utanríkismálanefndar Alþingis vill í þessum efnum ekki skipta um hest í miðri á: \"Það er ekki mín afstaða að hverfa eigi frá þeirri stefnu sem mörkuð var á síðasta ári í þessum efnum,“ segir hann við Fréttablaðið í dag og bætir við: \"Fyrir það fyrsta er staðan sú að Ísland tók þá ákvörðun strax vorið 2014 þegar ríki, bæði innan Evrópu og í Norður-Ameríku, ákváðu að bregðast við innlimun Krímskaga og ágangi Rússa í Austur-Úkraínu með ákveðnum þvingunaraðgerðum. Þá var tekin sú ákvörðun að Ísland myndi eiga samleið með þeim ríkjum sem það gerðu og ég tel ekki að það séu komnar fram þær forsendur til að breyta þeirri ákvörðun,“ segir hann við blaðið.