Landsliðskappinn Rúrik Gíslason segist mikinn áhuga hafa á tísku og hönnun og íhugar að fara út í fatahönnun. Hann hannaði nýverið stuttermabol með 66°Norður og er afar kátur með afraksturinn.
„Ég segi það bara hreint út. Það að hanna, það er algjörlega eitthvað sem mig langar að gera meira af. Ég geri mér samt grein fyrir því að ég hafi kannski ekki tæknina sem til þarf alveg á hreinu, ég þyrfti alltaf handleiðslu einhvers faglærðs. Svo er það líka þannig að framleiðsla á svona flík og hönnunarferlið, þetta er mjög flókið dæmi. Þannig að ég sá ekki fyrir mér að geta gert þetta einn. Ég hef unnið náið með 66°Norður í gegnum tíðina. Eða þú veist, farið í nokkrar myndatökur. Ekkert meira en það í rauninni,“ segir Rúrik í samtali við Fréttablaðið.
„Ég er að rækta listamanninn í mér. Hann er allt öðruvísi en fótboltamaðurinn í mér,“ segir hann og hlær.
Bolurinn er hinn glæsilegasti en allur ágóði af sölunni rennur til SOS Barnaþorpa.