Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, var gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld. Þar ræddi hann Procar svindlið, sem ljóstrað var upp um í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í febrúar. Í því stórtæka svindli átti bílaleigan Procar við kílómetramæla fjölda bíla sinna svo þeir virtust minna eknir en þeir voru í raun þegar þeir fóru í sölu. Neðst í fréttinni má sjá þáttinn í heild sinni.
Runólfur sagði málið afar víðfeðmt: „Það er mjög stórt, þeir eru búnir að gangast við því sjálfir að hafa að minnsta kosti átt við 110 bíla. Síðan er þessi óvissa, hversu margir bílar eru hugsanlega þarna til viðbótar.“
Procar er ennþá starfandi og aðspurður um hvernig það megi vera svaraði hann: „Ég spyr að því sama, af því að það stendur nú í regluverkinu í sambandi við það að fá heimild til þess að leigja út bifreiðar, að fyrirtæki þurfi að sýna af sér þannig háttsemi að það sé ekki að brjóta gegn lögum og reglum. Standa að sínum málum í anda þess sem að góðir viðskiptahættir kveða á um. Sem er reyndar frekar almennt orðalag en það er alveg ljóst að aðili sem var að leigja út bifreiðar sem voru sagðar eknar 80 þúsund kílómetra en reyndust vera eknir 180 þúsund kílómetra, það eru ekki góðir viðskiptahættir.“
Ótrúlegt aðgerðaleysi
Runólfi finnst sem enginn sé að gera neitt í málinu þrátt fyrir að um alvarlegt brot sé að ræða. „Það er ljóst að þetta er auðgunarbrot, þetta er skjalafals, þetta er bara hegningarlagabrot sem hefur verið framið þarna innan veggja þessa fyrirtækis. Einhvern veginn er enginn að gera neitt. Það er eins og allir séu bara að bíða eftir að rykið setjist og þá verði þetta aftur allt í lagi. Þetta er pínulítið eins og strúturinn að stinga höfðinu í sandinn, ég hef það á tilfinningunni.“
„Við kvörtuðum yfir því í upphafi, að lögreglan átti auðvitað að fara inn í fyrirtækið og leggja hald á öll gögn, bara til þess að verja rannsóknarhagsmuni. Það var ekki gert og þetta var bara til skoðunar, lengi til skoðunar, það er kannski ennþá til skoðunar, ég veit það ekki. Mér finnst þetta vera ótrúlegt aðgerðaleysi.“
Hér má sjá viðtalið í heild sinni: