Sendir rúv könnun 2 dögum fyrir kosningar

Rúnar Vilhjálmsson prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ hefur samband við Jón Þór Kristjánsson blaðamann á RÚV og sendir honum 2 dögum fyrir kosningar, Þjóðmálakönnun sem unnin var fyrir Rúnar af Félagsvísindastofnun í maí sl. RÚV slær fréttinni upp sem nýrri og lætur hvergi koma fram að fjallað var um könnuna í vor á sömu nótum. 


Í „fréttinni“ vill Rúnar koma á framfæri viðhorfi „Íslendinga“ til opinbers og einkareksturs heilbrigðisþjónustunnar. Rúnar er meiri áróðursmaður en vísindamaður og spurningarnar í könnuninni bera þess merki. Þannig er EKKI spurt um skoðun fólks á því hvort máli skipti hvort einkaaðilar eða opinberir aðilar reki heilsugæslu eða sjúkrahúsþjónustu ef aðgengi og kostnaður sjúklinga sé sá sami. EKKI er spurt hvort „Íslendingar“ vilji að einkaaðilar reki þjónustu sem geti sparað útgjöld ríkisins með því að gera það með minni tilkostnaði en opinberir aðilar, eins og raunin er. 


Er eðlilegt að prófessor við Háskóla Íslands í samvinnu við RÚV reyni að slá ryki í augu landsmanna með þessum hætti?