\"Er ég kem heim í Búðardal, bíður mín brúðarval\" er með þekktustu byrjunalínum í íslensku dægurlagi, en textann samdi hinn þjóðkunni Þorsteinn Eggertsson sem er líklega eitt af athafnamestu textaskáldum þessa lands. Hann lék þar að auki í hljómsveitinni Dátum á sjöunda áratugnum og þekkti menn eins og Ingimar Eydal og Rúna Júl mjög vel.
Rúnar kom til hans í heimsókn amk mánaðarlega síðustu æviár sín og hafði gjarnan eina flösku af viskí meðferðis en vegna hjartagalla mátti Rúni aðeins dreypa á einu glasi, Þorsteinn þurfti að klára restina. Þetta er meðal efnis í fyrsta þætti fjórðu þáttaraðar þáttarins Lífið er lag sem hefur göngu sína á Hringbraut kl. 20.30 í kvöld. Auk viðtals við Þorstein verður rætt við Þórunni Sveinbjörnsdóttur, formann Landssambans eldri borgara, um brýnustu hagsmunamál sambandsins um þessar mundir.
Þá verður einnig rætt við Hall Halldórsson tannlækni um tannlækningar á efri árum og komið það inná brúarsmíði og in-plönt og tannlækningar í A-Evrópulöndum. Einnig verður viðtal við Bjarna Sigurðsson framkv.stjóra Spánarheimilis um nýjungar í fasteignaviðskiptum og þeim möguleikum sem standa eldri borgurum til boða á Spáni.