Rúmlega helmingur karlmanna, 55 prósent, segist frekar eða mjög jákvæður gagnvart því að taka getnaðarvarnarpillu fyrir karlmenn að staðaldri, ef slíkt væri í boði. Þetta kemur fram í könnun MMR.
Í könnuninni kemur fram að karlar á höfuðborgarsvæðinu, 60 prósent, reyndust líklegri en karlar af landsbyggðinni, 48 prósent, til að segjast jákvæðir gagnvart því að taka getnaðarvarnarpillu að staðaldri.
Jákvæðni gagnvart reglulegri notkun á getnaðarvarnarpillum fór minnkandi með auknum aldri. Sögðust 63 prósent svarenda á aldrinum 18-29 ára og 61 prósent svarenda á aldrinum 30-49 ára reiðubúnir til að taka pillu að staðaldri, samanborið við 45 prósent þeirra á aldrinum 50-67 ára og 46 prósent þeirra 68 ára og eldri.
Aðeins 10 prósent neikvæðir
Alls kváðust 27 prósent þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar vera mjög jákvæðir gagnvart því að taka getnaðarvarnarpillu, 28 prósent voru frekar jákvæðir, 35 prósent hvorki jákvæðir né neikvæðir, 5 prósent frekar neikvæðir og 5 prósent mjög neikvæðir.
Könnunin var framkvæmd dagana 11. til 15. febrúar 2019og var heildarfjöldi svarenda 934 einstaklingar, 18 ára og eldri.