Alls bárust 1.038 kröfur í tryggingafé Gaman ehf., Gaman ferða, í kjölfar þess að ferðaskrifstofan hætti starfsemi. Kröfufrestur rann út á miðnætti fimmtudaginn 20. júní síðastliðinn.
Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að nú taki við yfirferð og vinnsla krafna og að í ljósi fjöldans megi búast við að nokkurn tíma taki að fara yfir og taka afstöðu til þeirra. Ferðamálastofa segist munu reyna að hraða ferlinu eins og kostur sé en ekki er búist við að mál fari að skýrast fyrr en með haustinu.
WOW air átti 49 prósent hlut í Gaman ferðum. Sem kunnugt er varð flugfélagið gjaldþrota undir lok mars síðastliðins. Tveimur vikum síðar skilaði Þór Bæring Ólafsson, framkvæmdastjóri Gaman ferða, ferðaskrifstofuleyfi ferðaskrifstofunnar.
Í samtali við Vísi sagði Þór að fall WOW hefði reynst meira áfall en búist var við, en flestar ferðir Gaman ferða voru skipulagðar í kringum flug félagsins. Þá var lausafjárstaða félagsins ekki nógu sterk til að tryggja áframhaldandi rekstur og því var tekin ákvörðun um að hætta starfsemi með það fyrir augum að þjónusta sem best hagsmuni viðskiptavina og starfsfólks.
Í umfjöllun Vísis um málið segir að Gaman ferðir hafi borið lögbundnar tryggingar sem ferðaskrifstofum er skylt að hafa. Þessar tryggingar eru hugsaðar til þess að grípa inn í og endurgreiða þeim ferðalöngum sem ekki komast í fyrirhugaðar ferðir. Eins og áður segir mun Ferðamálaskrifstofa nú vinna úr kröfunum 1.038 í tryggingafé Gaman ferða.