Rúmlega helmingur landsmanna styður fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur vegna kjaradeilu þeirra við Samtök atvinnulífsins. Tæplega þriðjungur er þeim andvígur. Þetta kemur fram í könnun sem Zenter rannsóknir unnu fyrir Fréttablaðið.
Af þeim sem tóku afstöðu til verkfallsaðgerðanna sögðust tæp 56 prósent vera frekar eða mjög sammála aðgerðunum, um einn af hverjum sjö var hvorki hlynntur né andvígur þeim og tæpur þriðjungur var andvígur.
Ef litið er til stuðnings eftir stjórnmálaflokkum styðja 90 prósent þeirra sem kjósa flokka sem eiga ekki mann á þingi aðgerðirnar. Hjá Flokki fólksins, Samfylkingunni og Pírötum mælist stuðningur á bilinu 70-80 prósent og eru rúm 60 prósent Vinstri grænna hlynnt aðgerðunum.
Aðeins fimmtungur kjósenda Sjálfstæðisflokksins styðja aðgerðirnar og tveir af hverjum þremur eru þeim andvígir. Næstminnstur er stuðningurinn hjá Framsóknar- og Viðreisnarfólki, eða undir helmingi.
Ef litið er til landshluta njóta aðgerðinar mests stuðnings á Reykjanesi, hjá um 73 prósent íbúa. Næst á eftir fylgja íbúar Norðurlands og Austurlands, með rúm 60 prósent.