Rúmlega helmingur landsmanna, eða 52 prósent, er andvígur því að slakað verði á reglum um innflutning á fersku kjöti, eggjum og ógerilsneyddri mjólk. Tæplega þriðjungur landsmanna, eða 32 prósent, eru fylgjandi breyttri löggjöf. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Zenter rannsóknir vann fyrir Fréttablaðið.
Flestir sem svöruðu sögðust mjög andvígir slíkri tilslökun, eða 34,4 prósent, en frekar andvígir voru 14,8 prósent.
„Ef þessi andstaða byggir á því að fólk kjósi frekar íslenskt kjöt en innflutt þá deili ég þeim skilningi og skil mætavel þá afstöðu. En ef hún byggir hins vegar á spurningum um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna þá tel ég að það þurfi að koma betur á framfæri niðurstöðum sérfræðinga um þau atriði,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í samtali við Fréttablaðið.
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er andstaðan mun meiri á landsbyggðinni en á suðvesturhorni landsins og andstaða kvenna er meiri en andstaða karla. Stuðningur við tilslökun reglna eykst með menntunarstigi fólks og auknum tekjum.
Stuðningur við innflutning á ferskvöru er mestur meðal þeirra sem styðja Viðreisn en minnstur meðal Framsóknarmanna. „Þessar niðurstöður sýna að við þurfum að standa okkur betur í að koma réttum upplýsingum á framfæri og spyrna fótum við þessum kerfisbundna hræðsluáróðri sem stundaður hefur verið gegn aukinni fjölbreytni og samkeppni á matvælamarkaði,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, í samtali við Fréttablaðið.