Rúmlega 94 prósent vilja bólusetningarskyldu

Rúmlega 94 prósent Íslendinga vilja að skylda til bólusetningar barna verði leidd í lög og rúmlega 90 prósent vilja að bólusetning verði gerð að skilyrði fyrir inntöku á leikskóla. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Zenter rannsóknir framkvæmdi fyrir Fréttablaðið.

Af svarendum reyndust rúm 94 prósent frekar eða mjög hlynnt því að skylda til bólusetningar yrði lögfest, tæp þrjú prósent sögðust hlutlaus og um þrjú prósent því frekar eða mjög andvíg. Þrír af hverjum fjórum sögðust mjög hlynntir slíkri skyldu.

Ögn minni stuðningur kom í ljós við að bólusetning við mislingum yrði gerð að skilyrði fyrir inntöku barns á leikskóla. Rúmlega 90 prósent reyndust hlynnt því, 3,4 prósent hlutlaus og rúm fimm prósent andvíg.