Rukkuð fyrir að sleppa sveppum: „Mjög vafa­samir við­skipta­hættir“

Með­limur hópsins Matar­tips vakti í gær at­hygli á því sem henni fannst vera undar­leg á­lagning með því að birta mynd af kvittun sem hún fékk á veitinga­staðnum Sölku að lokinni mál­tíð.

Á kvittuninni sést að tekið var gjald fyrir hvert einasta á­legg á ham­borgaranum og kostaði græn­meti á borð við kál, tómat og lauk 150 krónur stykkið. „Ekki nóg með það þá kostaði það líka 150 krónur að taka af græn­meti eða ost!!“ skrifaði matar­á­huga­maðurinn og tók einnig fram að ekki hafi verið hægt að skipta út græn­meti.

Ekki látin vita af kostnaðinum

Téður auka­kostnaður kom ekki fram á mat­seðli og ekki var látið vita um kostnaðinn á meðan pantanir fóru fram að sögn matar­gesta. „Mjög vafa­samir við­skipta­hættir og við munum ALDREI borða þarna aftur,“ í­trekaði matar­á­huga­maðurinn.

„Að við­bættu þá gleymdist einn rétturinn og kom mikið seinna eða þegar allir hinir voru að klára matinn.“

Vildu ekki endur­greiðslu

Færslan hefur vakið mikla at­hygli og hafa um 500 manns sett inn at­huga­semd um málið. Þá hafði veitinga­húsið Salka sam­band við matar­gestinn og sagði að það hafi verið gerð mis­tök þegar rukkað var fyrir að fjar­lægja á­legg.

„Þau báðust af­sökunar á þessu og buðust þar að auki til að endur­greiða okkur mis­muninn sem við af­þökkuðum. Ég tek það fram að við vorum ekki að fara fram á endur­greiðslu, þessi færsla var sett inn til að vekja at­hygli á undar­legri á­lagningu (að okkar mati)“