Rukka ríkið fyrir pizzurnar

Sigríður Á. Andersen alþingismaður segir, í viðtali við Hringbraut, að ekki sé rétt að tala um endurgreiðslur til kvikmyndagerðar, frekar eigi að tala um ívilnanir.

Alþingi hefur samþykkt að fjórðungur af kostnaði við kvikmyndagerð verði endurgreiddur úr ríkissjóði. Sigríður er alfarið andvíg þessu og segir að ekki eigi að mismuna atvinnugreinum.

Hún segir betra að lækka skatta. „Við eigum að lækka skatta og laða þannig erlenda fjárfesta að, erlenda menningu, framleiðendur, ekki bara kvikmyndaframleiðendur, heldur tónlistarframleiðendur og aðra, með hagkvæmu skattumhverfi, almennt. Ég vona að þeir sem eru mjög áfram um þetta mál missi ekki sjónar á því að þetta er verkefni sem þarf að fara í og ná samstöðu um.“

Sigriður bendir á að nú sé það þannig að í raun styrki ríkissjóður allan kostnað við kvikmyndagerð um fjórðung, þar á meðal pizzur og hótel.

Viðtalið við Sigríði er í Þjoðbraut sem hefst klukkan 21:00 í kvöld.