„Það getur verið svolítið ruglingslegt að búa á Íslandi,“ sagði sjö ára drengur nokkuð heimspekilega fyrir utan Brekkuskóla á Akureyri í morgun.
Með því átti hann við að fyrir þremur dögum í vetrarfríi grunnskólanna sem þá stóð yfir, renndu akureyrsk börn sér niður brekkur á snjósleðum. Nú er allur snjór horfinn og sleðar og snjóþotur standa víða aðgerðalitlir í iðjagrænu grasi eins og á Brekkunni á Akureyri þar sem myndi að ofan var tekin í morgun.
Nú er hitabylgja yfir landinu og spáð stormi. Hitamunurinn víða á Norðurlandi er um 25 gráður í dag miðað við mánudag en búist er við að hitastig fari víða í 15 stigin á landinu í dag. Í fyrradag flutti Hringbraut frétt af hálkuslysum, þar sem barn í norðlenskum grunnskóla braut hnéskel og tennur þegar það rann til á leikvelli. Hvatti þá lögregla íbúa til að fara varlega og fór sala á mannbroddum í hæstu hæðir.
Ruglingslegt, sannarlega. En líka fjölbreytt, ófyrirsjáanlegt og oft skemmtilegt...