Rottur þefa uppi jarðsprengjur

Rottur hafa í auknum mæli verið notaðar sem vopn til að þefa uppi jarðsprengjur í Kambódíu. 

Þrátt fyrir að 40 ár séu liðin frá því að borgarastríðinu lauk í Kambódíu eru jarðsprengjur þar í landi ennþá stórt vandamál. Samkvæmt fréttavef Reuters hafa tæplega 20 þúsund manns látið lífið vegna jarðsprengna og yfir 40 þúsund særst af þeirra völdum.

Stjórnvöld í Kambódíu vonast nú til að þjálfaðar rottur geti dregið all verulega úr banaslysum vegna þessara hættulegu vopna. Aðferðin hefur verið notuð í ýmsum ríkjum Afríku með góðum árangri, en ólar eru festar á rotturnar áður en þeim er hleypt á jarðsprengjusvæðin. Rotturnar hafa reynst vel til að þefa uppi jarðsprengjurnar og annað sprengiefni. 

„Rotturnar vinna mun hraðar en menn, fimm til sex sinnum hraðar.“ segir Theap Thoeun, umsjónarmaður jarðsprengjusvæðis í Kambódíu. Auk þess segir hann þær vera of litlar og léttar til að valda sprengingu þegar þær stíga á sprengjurnar. Vel þjálfaðar rottur geti því aðstoðað við að hreinsa stór landsvæði á skömmum tíma án þess að sprenging verði af völdum þessara hættulegu vopna. 

Myndskeið sem sýnir rotturnar í þjálfun má finna hér