Rosenstein veitti mueller sérheimild

Rob Rosenstein, aðstoðardómsmálaráðherra Bandaríkjanna veitti Robert Mueller, sérstökum saksóknara, sérheimild í fyrra til að rannsaka störf Pauls Manaforts fyrrum kosningastjóra Trumps í þágu fyrrum forseta Úkraínu. Þetta kom fram í minnisblaði frá Rosenstein sem saksóknarar í yfirstandandi dómsmáli Manaforts lögðu fram í gærkvöldi.

Minnisblaðið var svar við þeim mótbárum verjenda Manaforts að Mueller hefði ekki heimildir til þess að skoða erindrekstur hans fyrir stjórnvöld í Úkraínu. Í minnisblaðinu er sérstökum saksóknara veitt valdheimild til að rannsaka ásakanir þess efnis að Manafort „hafi framið glæp eða glæpi með leynimakki við rússneska embættismenn að því er snerti afskipti þeirra af forsetakosningunum 2016“ eða í tengslum við greiðslur sem hann hafi þegið frá stjórnvöldum í Úkraínu.

Minnisblaðið staðfestir með skýrari hætti en áður hafði verið vitað að Mueller hafi beinlínis til rannsóknar hugsanlegt leynimakk fyrrverandi starfsmanna Trump-framboðsins.