Rósbjörg er nýr formaður landverndar

Rósbjörg Jónsdóttir framkvæmdastjóri var kjörin formaður Landverndar á aðalfundi samtakanna í gærkvöldi, en Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur, gaf ekki kost á sér áfram.

Aðalfundurinn samþykkti fimm ályktanir: Um að rammaáætlun væri á rangri braut, að bæta þurfi lög um mat á umhverfisáhrifum, hernað gegn íslenskum lindám, ákall um rannsóknir á örplasti í hafi og eflingu fráveitumála og alvarlegar áhyggjur af hnignun lífbreytileika á heimsvísu.

Þrír stjórnarmeðlimir hlutu endurkjör til setu í stjórn, en það voru þau Lovísa Ásbjörnsdóttir, jarðfræðingur, Pétur Halldórsson, líffræðingur og Margrét Auðunsdóttir, framhaldsskólakennari. Páll Ásgeir Ásgeirsson, leiðsögumaður og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, orku-og umhverfisverkfræðingur, hlutu einnig kjör í stjórn. Stjórnin situr til tveggja ára og mun stýra starfi Landverndar inn í hálfrar aldar afmælisár á næsta ári.