Rósa sögð nota fé bæjarins sér í hag

„Mér finnst þetta náttúrulega í hæsta máta óeðlilegt,“ segir Adda María Jóhannsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði við ruv.is um fylgirit með Fréttablaðinu í vikunni sem bærinn borgaði fyrir 250 þúsund krónur. Í blaðinu var viðtal við Rósu Guðbjartsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins. Oddvitar annarra flokka voru ekki í viðtali í blaðinu.
 

Tekist var á um málið í oddvitaumræðum Hafnarfjarðar á Rás 2 í gær. Rósa sagði þar að Hafnarfjarðarbær hefði árum saman gefið út ýmiskonar kynningarefni um bæjarmálin. Þegar henni var bent á að öðru máli gilti kannski svo skömmu fyrir kosningar sagði Rósa:

„Ég skil punktinn. Þarna var óskað eftir ummælum mínum inn í kynningarefni sem Hafnarfjarðarbær keypti um miðbæ Hafnarfjarðar,“ sagði hún. „Ég var þarna að tala fallega um bæinn minn og miðbæjarstemmninguna og hef gert það í fréttum og ýmsu sambærilegu á þessu kjörtímabili eins og alltaf.“

Oddvitum annarra flokka fannst þetta hins vegar ekki eins sjálfsagt og Rósu. Guðlaug Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar, sagðist ekki hafa verið með í ráðum. „Það var mamma mín sem sagði mér frá þessum kálfi í gær – ég hafði ekki hugmynd um hann. Þannig að það var ekki leitað eftir neinu kommenti frá mér og ég vissi ekki að það stæði til að kynna þetta eins og bærinn er greinilega að gera mjög mikið. Ég er hissa á þessu,“ sagði hún.