Rósa reið við kosningastjóra VG fyrir að líkja auglýsingu við Shining: „Þrjú börn og fötluð móðir kemur fyrir“

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir Önnu Lísu Björnsdóttur, kosningastjóra Vinstri grænna, harðlega fyrir að líkja kosningaauglýsingu Samfylkingarinnar við kvikmyndina The Shining.

Auglýsingunni var deilt á Twitter og sagði Anna Lísa:

„Fruss. Smá fyndið. Eins og að horfa á hina the Shining.“

Fyrir þá sem ekki þekkja er The Shining er hryllingsmynd úr smiðju Stanley Kubrick með Jack Nicholson í aðalhlutverki, missir hann vitið og reynir að myrða eiginkonu sína og son.

Rósa svarar og segir: „Æ í alvöru stelpur. Það er nú ekki mjög smekklegt að skrifa svona um auglýsingu þar sem börn eru áberandi.“

Anna Lísa benti á að fleiri hafi hæðst að auglýsingunni.

Rósa Björk er ekki sátt og segir:

„Þú sem kosningastjóri VG ert að lýsa auglýsingu þar sem þrjú börn og fötluð móðir kemur fyrir sem “hina the Shining” hryllingsmynd sem er ótrúlega ósmekklegt. Svarar svo með skætingi með einhverju sem maður sem ég þekki ekki,er ekki í framboði fyrir Samfylkinguna skrifa eh.staðar.“

Anna frábiður sér málflutning Rósu:

„Já sæl - ætlar þú í alvöru að afbaka kommentið mitt svona. Það var gert meistaraverk og svo ekki meistaraverk. Það er það sem ég er að tala um og ég frábið mér þessi samskipti.“