Rósa guðbjarts verður bæjarstjóri

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og óháðir hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Ákveðið er að Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks verði bæjarstjóri.

Rúv segir frá í kvöld.

 Ágúst Bjarni Garðarsson, oddviti Framsóknar og óháðra, verður formaður bæjarráðs og Kristinn Andersen, Sjálfstæðisflokki, verður forseti bæjarstjórnar. 

Málefnasamningur er á lokametrunum.