Rósa Björk og Líf í hár saman: „Er kosningasigur XB nú orðin kosningasigur VG og XD?“

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, segir að það þurfi að staldra við þegar rætt sé um kosningasigur ríkisstjórnarflokkanna. Rósa Björk er ein þeirra þingmanna sem datt út af þingi þegar atkvæði í Norðvesturkjördæmi voru endurtalin. Ríkisstjórnin bætti við sig þingmönnum sem er fáheyrt í stjórnmálasögunni þar sem sitjandi ríkisstjórnir tapa yfirleitt þingmönnum í kosningum en ekki öfugt.

„Þegar fullyrt er um kosningasigur ríkisstjórnarinnar skulum við staldra aðeins við. Tveir ríkisstjórnarflokkar töpuðu samanlagt 5,1 % frá kosningum 2017,“ segir Rósa Björk á Twitter. „Framsókn bætti við sig 6,6 % og er vissulega sigurvegari kosninganna. Er kosningasigur XB nú orðin kosningasigur VG og XD?“ Töpuðu Vinstri græn þremur þingmönnum.

Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn, svarar fyrir sitt fólk:

„Já - ef þú ert að tala um þriggja flokka fylgi og tekur það saman í eina heild. Þá bætti ríkisstjórnin við sig. Sem er merkilegt i og for sig.“

Rósa Björk er ekki sannfærð:

„Er það? Af hverju finnst þér það merkilegt að aukið fylgi Framsóknar bæti fylgi ríkisstjórnarflokkanna um 1,5% ? Er að spyrja einlæglega.“

Ragnar Auðun Árnason, sem var formaður Vinstri grænna í Reykjavík, tekur undir með Líf og segir:

„Er það ekki bara afþvi að síðan í hruni hefur ríkisstjórn aldrei bætt við sig fylgi eftir kosningar og á síðustu 90 árum hafa ríkisstjôrnir aðeins bætt við sig fylgi í 6/29 skiptum. Þá er þetta í fyrsta sinn sem 3flokka ríkisstjôrn heldur í kjörtímabil, og svo bætir hún í.“

Líf er ánægð með hann og segir: „Já- þetta er ansi merkilegt.“

Rósa Björk ítrekar spurninguna en lítið er um svör:

„Eina og ég segi. Framsókn bætti við sig. Hinir tveir töpuðu. Hvernig er það sigur?“