Röraverksmiðjan set heimsótt

Ný þáttaröð af Atvinnulífinu hefst á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en þá mun umsjármaður þáttanna, Sigurður K. Kolbeinsson heimsækja röraverksmiðjuna SET á Selfossi.

Saga þess fyrirtækis er á margan hátt dæmigerð fyrir farsæl fyrirtæki sem hafa dafnað og þroskað sakir samheldni starfsfólksins og einurðar eigenda þess, en fyrirtækið hefur stækkað mjög að umsvifum á síðustu árum og fært út kvíarnar til annarra landa.

Atvinnulífið hefur verið á dagskrá Hringbrautar frá upphafi og verið á meðal vinsælustu þátta stöðvarinnar, enda gefst áhorfendum þar upplagt tækifæri til að kynnast í raun og sann hvernig margvísleg fyrirtæki hér á landi framleiða vöru sína og þjónustu.

Atvinnulífið er frumsýnt klukkan 21:00 í kvöld og endursýnt strax klukkan 23:00.