Röng ófærð: þyrludyrnar óvart opnar

Dyrnar á Þyrlu reykvískra lögreglumanna áttu að vera lokaðar, ekki opnar þegar haldið var af stað frá Siglufurði með meintan morðingja í sjöunda þætti Ófærðar.

Þar með er ráðgátan leyst hvað varðar mistök í útsendingu Ríkissjónvarpsins, en eins og kunnugt er var röng útgáfa af þættinum send út á sunnudagskvöld - og enda þótt strax hefði verið látið í veðri vaka að um smávægilegan mun hafi verið á efnistökum útgáfanna lék áhorfendum, sem eru ófáir, forvitni á að vita hvernig rétta útgáfan liti út.

Og niðurstaðan sást í útsendingu réttu útgáfunnar í gær: Auðvitað áttu dyrnar á þyrlunni að vera lokaðar þegar Sigurður, leikinn af Þorsteini Bachman, henti sér út úr þyrlunni undir lok þáttarins.

En þær voru opnar á sunnudag.

Lokaðar í gærkvöld.

Sá er munurinn.