Rólegt og rennislétt hjá pálma gunnars

Söngvarinn ástsæli Pálmi Gunnarsson heldur tvenna jólatónleika um helgina í Austurbæ. Tónleikarnir fara fram í kvöld, 14. desember, og annað kvöld, 15. desember. Snædís Snorradóttir ræddi við hann um tónleikana og jólahátíðina í Mannlífinu í sjónvarpsþættinum 21 í gærkvöldi.

„Margir af þessum jólatónleikum eru náttúrulega risastór „show“, mikið lagt í sviðssetningar og leiktjöld og svona, en ég er allavega pínulítið langt í burtu frá þessu, ég er bara fyrst og fremst með mannskapinn á sviðinu og við spilum lög sem við fílum að spila. Góður mannskapur, falleg lýsing og við reynum að hafa þetta svolítið slakt og rennislétt“, segir Pálmi um hvers konar tónleikum gestir megi eiga von á.

Pálmi er mikill jólamaður. „Ég er alinn upp í litlu þorpi úti á landi þar sem jól skiptu gríðarlega miklu máli. Það er alveg geggjuð minning sem tengist þeim, eplalyktin til dæmis. Miklu minni læti og það var þessi stemning að fólk var virkilega að búa til hátíð. Mér finnst þessi árstíð mjög skemmtileg. Mér finnst hún snúast um fjölskylduna og væntumþykjuna“, segir Pálmi og telur að lögin sem hann syngur og mun flytja á tónleikunum endurspegli þessar tilfinningar.

Nánar er rætt við Pálma í Mannlífinu í sjónvarpsþættinum 21:

http://www.hringbraut.is/sjonvarp/thaettir/tuttuguogeinn-21/21-mannlifid-palmi-gunnarsson