Rökræður standa nú yfir á facebook-síðu Össurar Skarphéðinssonar fyrrum utanríkisráðherra, hvort Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hafi tjáð starfsmönnum Þróunarsamvinnustofnunar að hann þyrfti engin rök til að leggja stofnunina niður.
Í status sem Össur ritar um miðnættið í gærkvöld á facebook staðhæfir Össur að svo sé. Hann skrifar undir fyrirsögninni Valdhroki Gunnars Braga:
„Þegar Gunnar Bragi Sveinsson kallaði saman starfsmenn ÞSSÍ og tilkynnti þeim að það ætti að leggja niður stofnunina spurðu skelkaðir starfsmenn hvaða röksemdir hann hefði fyrir því að slá stofnunina af. - Svör Gunnars Braga voru einkennandi fyrir þá valdníðslu sem einkennir þessa óskiljanlegu ákvörðun. Þau voru svona: „Ég þarf engar röksemdir.“
Sunna Gunnars Marteinsdóttir, aðstoðarmaður Gunnars Braga, segir að góð skýrsla sé grunnur að þessari ákvörðun. Þróunarsamvinna muni áfram starfa skv þeim línum sem þróunarsamvinnuáætlun leggi upp og samþykkt sé af alþingi. „Bendi á að rikisendurskoðun er ny buinn að gera skyrslu um utanrikisraðuneytið sem fekk goða einkunn“.
Þá er hitt rætt einnig hvort Össur fari rangt með. Róbert Smári Gunnarsson skrifar: „Ósmekklegt Össur. Þú spurðir hann í ræðustól horft hann kannaðist við þessi orð og ráðherra svaraði neitandi. Svo heldur þú því bara fram þó hann hafði neitað því. Til hvers ertu að því? Til að koma höggi á hann? Sem einkennir að vísu vinnubrögð minnihlutans.“
Svarar þá Össur að fulltrúi starfsmanna hafi áður fullyrt hið sama og verður ekki annað lesið en að Össur trúi starfsmanni betur en Gunnari Braga:
„Eftir orðaskipti okkar á Alþingi hafa starfsmenn - í fleirtölu - haft samband og staðfest að hann hafi látið þessi orð falla. Ein af skyldum mínum er að veita framkvæmdavaldinu aðhald og upplýsa ef það hratar af vegi meðalhófs.“