Markaðspunktar Arion banka skoða vaxtamál.
Undafarin ár og áratugi hafa vextir og verðbólga lækkað á Vesturlöndum. Þessi þróun - sem margir klóra sér í kollinum yfir - hefur náð til Íslands.
Að því leiti að verðbólga hefur sjaldan verið jafn lítil jafn lengi.
Auk þess virðist sem Seðlabanki Íslands geti náð markmiði um verðbólgustöðugleika með lægri raunvöxtum en áður.
Ef skoðað er úr hverju almennir nafnvextir eru almennt samsettir virðast flest rök hníga til umtalsvert lægri vaxta en þekkt er sögulega.
Þar vega þungt kraftar til lægri raunvaxta og lækkun verðbólguvæntinga. Við leggjast bættar ytri aðstæða og traust innri staða þjóðarbúsins.
Lægri vextir krefjast þó traustrar hagstjórnar.
Rétt er að nefna að slíkt markmið getur í sjálfu sér verið varasamt.