Hvassahraun sunnan Hafnarfjarðar er best fallið til að verða mistöð innanlandsflugs á höfuborgarsvæðinu samkvæmt niðurstöðum Rögnunefndarinnar svokölluðu sem fengin var til að meta bestu mögulegu staðsetningu flugvallar í eða í grennd við Reykjavík.
Fimm kostir voru til skoðunar; Vatnsmýrin í breyttri mynd sem nefndin telur kosta jafn mikið og uppbygging í Hvassahrauni, Hólmsheiði sem þykir útilokuð sakir veðurlags, Bessastaðanes sem kemur ekki til greina vegna friðlýsingar, Löngusker sem þykja of kostnaðarsöm og loks Hvassahraun sem er talið vera sá staður sem býður upp á mesta möguleika hvað framtíðaruppbyggingu innanlands- og jafnvel millilandaflugvallar varðar.
Nefndinni var hvorki falið að meta kosti óbreyttrar staðsetningar eða möguleika á að flytja völlinn til Keflavíkur, heldur aðeins að skoða fimm fyrrgreinda kosti.
Ljóst er að þessi niðurstaða mun í engu breyta þeim átökum sem verið hafa um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Af stuðningsmönnum Reykjavíkurflugvallar er bent á að Hvassahraun sé fjærst Landspítalanum af öllum kostum, stjórnsýslan bendir á fjarlægðina frá miðborginni, fllugstjórar benda á ótryggt veðurlag á þessum slóðum og enn aðrir benda á gríðarlegan kostnað við tengingu umferðarmannvirkja ef flugvöllurinn á að þjóna sama tilgangi og Reykjavíkurflugvöllur hefur gert um áratugaskeið.
Talið er að nýr flugvöllur í Hvassahrauni kosti minnst 25 milljarða - og þá er vegtengingar eftir.