Rof á raunveruleika og skynjun

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir sífellt minnkandi traust í skoðanakönnunum þrátt fyrir góðan árangur í efnahagsmálum kunni að skýrast að einhverju leyti á rofi milli raunveruleika og skynjunar.  Þetta kemur fram á Eyjunni í dag þar sem birt er viðtal við Sigmund Davíð um frammistöðu ríkisstjórnarinnar á fyrri helmingi þessa kjörtímabils.  


„Ég er mjög sáttur við þessi tvö fyrstu ár þessa kjörtímabils og get eiginlega ekki verið annað því miðað við alla hlutlæga mælikvarða á árangur stjórnvalda, þá hefur þróunin verið það jákvæð að ég hefði ekki þorað að vona að þetta myndi ganga jafnhratt í rétta átt eins og raunin hefur orðið,“ segir Sigmundur í viðtalinu.


Forsætisráðherrann skýrir viðvarandi óánægju í samfélaginu um gang mála á þann veg að raunveruleikinn sé oft eitt og svo tilfinningin annað.  Hann segir að því sé ítrekað haldið á lofti að að misskipting sé að aukast hér á landi, en reyndin sé að jöfnuður sé þó meiri hér en víðast hvar, ef ekki alls staðar annars staðar. Það hafi lagast enn í tíð þessarar ríkisstjórnar, en þar sem stöðugt sé fullyrt um hið gagnstæða magnist óánægja almennings.