Tveir nýir þingmenn af öllum þeim 31 sem fyrst taka nú sæti á Alþingi eru Bryndís Haraldsdóttir, Sjálfstæðisflokki og Theodóra Þorsteinsdóttir, Bjartri framtíð. Báðar sitja í bæjarstjórnum, Bryndís í bæjarstjórn Mosfellsbæjar og Theodóra er formaður bæjarráðs Kópavogs.
Bryndís segist hafa boðið sig fram á Alþingi til að vinn að því að samstilla betur sveitarstjórnarstigið og þingið og Theodóra segir góða reynslu af bættum vinnubrögðum í bæjarstjórn Kópavogs eftir að Björt framtíð tók þar sæti. Henni segist hafa brugðið fyrst þegar hún tók sæti í bæjarstjórn yfir átakamenningu sem henni fannst vera á milli minni - og meirihluta. Þetta hafi lagast enda þyki henni verkefni bæjarstjórna of viðkvæm, s.s. velferðarmál og öll önnur mál nærsamfélagsins til þess að fulltrúar hafi efni á því að vera að klekkja á hvor öðrum, eins og hún orðar það á Þjóðbraut í kvöld.