Guðmundur Þóroddsson fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur telur að rekja megi bágt ástand vesturhúss höfupstöðva Orkuveitunnar til skorts á viðhaldi vegna sparnaðaraðgerða Orkuveitunnar eftir hrunið árið 2008.
Í skýrslu verkfræðistofu sem rannsakar upptök vatnsleka í húsinu er að sjá sem fjölmörg mistök hafi verið gerð við byggingu höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur.
Milljarða færi í úrbætur nema að sú ákvörðun verði tekin að rífa húsið. Borgarstjóri útilokar það ekki. Guðmundur Þóroddsson segir að hann muni ekki hver hafði eftirlit með byggingingarframkvæmdununum fyrir Orkuveitu Reykjavíkur.
Þessu máli er augljóslega hvergi nærri lokið að og áfram verður leitað svara um hvort vankantar voru á byggingu hússins og þá hverjir bera ábyrgð á því að í óefni er komið.
Þess er beðið að Alfreð Þorsteinsson fyrrum stjórnarformaður Orkuveitunnar á miklu vaxtarskeiði hennar leggi hér orð í belg.
Alfreð hefur alla tíð starfað innna Framsóknarflokksins. Hann starfaði í borgarstjórnarflokki Framsóknarflokksins óslitið frá árinu 1970 til ársins 2006 þegar hann dró sig í hlé.
Ráðist var í þessa stórframkvæmd í formennskutíð Alfreðs Þorsteinssonar og þótti mörgum nóg um framkvæmdagleðina. Þannig var bygging höfuðstöðva Orkuveitunnar á Bæjarhálsi harðlega gagnrýnd sem og tilraunir fyrirtækisins til að blanda sér í slaginn á fjarskiptamarkaðnum.
Nánar www.ruv.is www.is.m.vilkipedia.org