Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði sem lagt hefur milljarða fjárfestingu í uppbyggingu bæjarins og ferðaþjónustu, skrifar beittan pistil á siglo.is þar sem athafnamaðurinn sakar Arion banka um hefndarhyggju.
Pistill Róberts ber yfirskriftina: „Hefndin er sæt“. Þar segir að frést hafi að Arion banki muni verða með nýtt útibú sitt á Siglufirði í húsnæði sem Sparisjóður Siglufjarðar var í á árum áður. Starfsemin verði flutt úr gamla Útvegsbanka húsinu sem standi við aðaltorg bæjarins. Löngum leigusamningi um húsnæðið hafi þó ekki verið sagt upp. Skýring Arion banka verði væntanlega að um hagræðingu sé að ræða.
Svo skrifar Róbert: „Sennilegri skýring er að húsnæði það sem flytja á úr er leiguhúsnæði í eigu félags tengdum undirrituðum sem hefur verið með ítrekaðar aðfinnslur vegna þjösnaskapar Arion banka við yfirtöku á Afl sparisjóði.
Skilaboðin eru því einföld. Menn eiga ekki að voga sér að abbast upp á ofurvald Arion banka vogunarjóðanna. Þar séu völdin sem munu móta hið nýja Ísland.“
Pistil Róberts á siglo.is má lesa hér.