Róbert og harvard-kenningin

Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, er einn gesta Jóns G. í kvöld. Þeir ræða um umsvif hans fyrir norðan og hvernig vinsæl kenning í Harvard um share value; að deila verðmætum (sameiginleg verðmæti) smellpassar við fjárfestingarstefnu Róberts fyrir norðan. Genís er á góðri siglingu og það er hryggjarstykkið í fjárfestingum Róberts – og sú sem hann veðjar mest á. Róbert hefur fjárfest yfir 4 milljarða á Siglufirði og þessa dagna reisir hann nýjan golfskála fyrir nýjan glæsilegan golfvöll á Siglufirði. Hann ræðir um lífeyrissjóðina, uppbyggingu vegakerfisins og síðast og í lokin segir hann okkur frá vini sínum Hannesi Boy.