Róbert: margir af helstu kverúlöntum og besservisserum þjóðarinnar stigið fram

„Það er mjög auðvelt að búa til tortryggni og anda þess að það sé verið að blekkja fólk. Það eru nógu mörg dæmi um það að hlutir hafa verið ákveðnir og samþykktir og þeir síðan ekki farið eins og ætlað var. Þannig að það er full innistæða fyrir ákveðnu vantrausti [í garð Alþingismanna]. Mér finnst þessi umræða sýna okkur hvað það er í raun og veru auðvelt fyrir fáa einstaklinga, ég vil leyfa mér að nota orðið kverúlanta, og síðan frekar illa upplýst fólk, að afvegaleiða umræðuna. Það er svolítið leiðinlegt, vegna þess að það eru mjög mörg brýn álitaefni og mál sem eru þá ekkert á sviðinu og er þá enginn fókus á. Þetta er í mínum huga algert smámál, sem er búið að taka alveg fáránlegan tíma og það er engin innistæða fyrir þeim tíma og þeirri umræðu sem fram hefur farið.“

Þetta segir Róbert Marshall, fyrrverandi fjölmiðlamaður og þingmaður, um þriðja orkupakkann. Róbert og Magnús Geir Eyjólfsson, ritstjóri Mannlífs, eru gestir Sigmundar Ernis í Ritstjórunum í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræða þeir helstu fréttamál líðandi stundar, þar á meðal þriðja orkupakkann.

Róbert segir að umræðan um þriðja orkupakkann hafi í sínum huga dregið fram mikilvægi EES samstarfsins fyrir Ísland: „Hvað þessi samningur er gríðarlega mikilvægur okkur og hvað hann hefur leitt mikið gott af sér og hvað alþjóðasamstarf er gott fyrir okkur og fyrir þjóðir.“

Magnús Geir segist hafa fylgst töluvert með málinu frá upphafi þess síðastliðið haust. „Ef maður virkilega kynnir sér það sér maður að það er ekki þessi ótti, það er engin innistæða fyrir þessum ótta. En þetta sýnir bara hvað það er auðvelt að taka mál sem eru kannski flókin og tæknileg í eðli sínu og gera tortryggileg. Þetta er flókið mál, þriðji orkupakkinn, orðin fela það í sér. Það sem er kannski sérstakt við þessa umræðu er að það er sama hversu margir sérfræðingar koma fram, hvað ráðherrar koma oft fram og reyna að útskýra málið á tiltölulega einfaldan máta, það virkar ekkert. Þetta er farið að snúast um svo mikið. Ef þú skoðar umræðuna á Facebook grúppu orkupakkans [Orkan okkar], þá úir og grúir af samsæriskenningum, ein var til dæmis sú að Guðlaugur Þór utanríkisráðherra myndi græða milljarða. Mikið til snýst þetta bara um hvort við eigum að vera í EES eða ekki. Svo eru Sósíalistar og verkalýðshreyfingin komin inn í þetta á þeim grundvelli að það eigi ekki að vera að markaðsvæða raforkukerfið, sem er reyndar löngu búið að. Þannig að umræðan er út um allt, það er svolítið erfitt fyrir ríkisstjórnina að ná stjórn á umræðunni.“

Róbert minnist aftur á hvernig kverúlantar hafi tekið sér sess í umræðunni um þriðja orkupakkann. „Mér finnst margir af helstu kverúlöntum og besservisserum þjóðarinnar hafa stigið fram í þessu máli og ég verð að viðurkenna það að mér fannst það vera ákveðið „poetic justice“ að Guðlaugur Þór þurfti að vera sá sem myndi mæta þeim og útskýra fyrir þeim að þeir hefðu rangt fyrir sér. Guðlaugur Þór er bara að standa sig vel í þessu máli,“ segir Róbert.

Aðspurður um hvort einungis sé um pólitík að ræða segir Magnús Geir: „Já í rauninni, þetta er það. Það væri rosalega vont fyrir ríkisstjórnina að bakka með þetta mál það sem eftir lifir þings, því að eins og þeir hafa ítrekað bent á eru allir sérfræðingar sem mæla með þessu, ráðherrarnir hafa sjálfir komið fram og sagt að það sé ekkert að óttast. Ef þeir bakka með mál út af svona hreyfingu, það myndi bara setja mjög slæmt fordæmi.“

Nánar er rætt við Róbert og Magnús Geir í Ritstjórunum í 21 í kvöld. Þar ræða þeir einnig Klaustursmálið, vandræði Herjólfs og bráðnun Snæfellsjökuls. Þátturinn hefst klukkan 21:00.