Róbert Gíslason kom að föður sínum, Gísla Rúnari Jónssyni, látnum fyrir ári. Róbert sagði sögu sína í átakanlegu helgarviðtali í Fréttablaðinu. Hann var lengi í sprengjulosti en lokar nú erfiðasta ári lífs síns, eftir fall og upprisu, með tilfinningalegu uppgjöri í laginu Gat ekki meira, þar sem hann biður um skilning fyrir pabba sinn.
„Pabbi dó fyrir akkúrat ári síðan á fimmtudaginn, 28. júlí 2020, og ég átti versta dag lífs míns,“ segir Róbert Gíslason, tónlistarmaðurinn Royal, sem lagði erfiðasta ár sem hann hefur upplifað að baki á fimmtudaginn með útgáfu lagsins Gat ekki meira.
„Það er ekki hægt að segja annað en að þetta er klárlega búið að vera erfiðasta árið sem ég hef upplifað hingað til,“ segir Róbert sem hafði þó marga fjöruna sopið áður en hann fann föður sinn látinn og meðal annars glímt við álíka mein og drógu föður hans að lokum til dauða.
Í sprengjulosti
„Þennan dag hrundi ekki bara heimurinn minn gersamlega. Heldur hrundi bara allur heimurinn á svo óhuggulegan hátt að það eiginlega bara... ég get ekki alveg lýst því,“ heldur Róbert áfram eftir stutt hik.
„Allt gjörsamlega bara hrundi og ég fann fyrir mikilli breytingu, einhvern veginn, bara á því hvernig ég upplifði allt. Ég var í sjokki bara. Ég var eins og í sprengjulosti að því leyti að skelin mín var svoleiðis hrist og allt inni í henni í henglum. Ég held að kannski svona fyrstu fjóra mánuðina hafi ég bara verið í „shell shock“ eins og hermenn lýsa. Þótt maður beri þetta ekkert saman. Ég hef aldrei verið í neinu stríði,“ segir Róbert.
„Óhuggulegast finnst mér að ég gerði mér í rauninni ekkert grein fyrir hvað ég var virkilega hristur. Ég var eiginlega bara sannfærður um að ég væri að höndla þetta mjög vel og fékk svona einhverja ábyrgðartilfinningu,“ segir Róbert sem einhvern veginn beit það í sig að hann yrði að höndla áfallið vel.
„Ég veit ekki af hverju en mér fannst að ég ætti sko að taka vel á þessu og vera til staðar fyrir fjölskylduna mína og hitt og þetta. Ég hélt að þetta sjokkástand væri varanleg breyting á mér. Þetta væri bara nýi ég. Ég fann fyrir samkenndarleysi og óhuggulega miklu skilningsleysi gagnvart öllum. Þar kemur líka sjálfsvorkunnin inn og alls konar. Mikil reiði, gremja og alls konar þungar, miklar og dramatískar tilfinningar.“
Gat ekki meira
Róbert var enn í áfalli þegar lagið Gat ekki meira, sem hann gaf út á dánardegi pabba síns, kom einhvern veginn til hans tveimur mánuðum eftir að Gísli Rúnar lést. Hann segir síðan vinnuna við það hafa hjálpað honum mikið að vinna úr áfallinu og sorginni.
„Ég hef náttúrlega alltaf notað listina til að takast á við lífið og lagið hjálpaði mér mikið. Algjörlega og mér fannst einhvern veginn alveg skýrt að þetta kom bara til mín eins og upp úr þurru. Ég veit ekki hvað ég á að kalla það, skilaboð, orku eða hvað sem það var,“ segir Róbert.
Engir stælar
„Ég samdi textann og syng en hann gaf mér vinnu sína og hæfileika og gerði lagið sem ég er mjög ánægður með,“ segir Róbert um Gat ekki meira sem er aðgengilegt á Spotify undir listamannsnafninu Royal Gíslason.
„Þetta lag er svolítið sérstakt á þann hátt að ég er ekki með neina stæla. Þetta er eins tært og einlægt og ég hef nokkurn tímann þorað að gefa út eða gefa frá mér, eða í rauninni bara sýna nokkurri manneskju og ég er að gera það fyrir pabba. Þetta er alveg sérstakt verkefni og öðruvísi en ég hef verið að gera. Þetta er bara alveg sér. Bara einstakt fyrir pabba. Þetta er til hans. Þetta er fyrir hann. Þetta er frá honum,“ segir Róbert.
„Og ég vona virkilega, innilega að þetta geti mögulega hjálpað einhverjum af því ég veit að það er það sem hann hefði viljað. Alveg 150% og ég veit að hann yrði þakklátur fyrir það. Þess vegna er ég að gera þetta. Ég vil einfaldlega bara fá skilning fyrir pabba minn. Ég vil það.“
Fékk erfiðasta símtal lífs síns
Móðir Róberts, þjóðargersemin Edda Björgvinsdóttir, tjáði sig einnig um missinn á fyrrum eiginmanni sínum Gísla Rúnari á Facebook.
„Elsku Gísli Rúnar lífsförunautur minn og besti vinur. Fyrir einu ári síðan fékk ég erfiðasta símtal sem ég hef fengið í lífinu. Þú varst farinn frá okkur yfir í aðra heima. Ég get ekki tjáð líðan mína en hér er kveðja til þín,“ skrifaði Edda á Facebook-síðu sinni og deildi með lagi Róberts, Gat ekki meira.