Róbert fer til vg

Róbert Marshall, einn af stofnendum og fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, bætist nú í hóp þeirra sem hætta stuðningi við flokkinn.

Hann tilkynnti í dag að hann hygðist kjósa Vinstri græn í kosningunum á laugardag.

Róbert var ásamt Guðmundi Steingrímssyni ein aðaldriffjöðurinn á bak við stofnun Bjartrar framtíðar fyrir alþingiskosningarnar 2013, þar sem flokkurinn náði ágætum árangri.

Þeir félagarnir ákváðu svo að bjóða sig ekki fram í kosningunum 2016 og nýlega sagðist Guðmundur guðs lifandi feginn að vera sloppinn úr því „eineltisumhverfi“ sem stjórnmálin séu.

Guðmundur hefur ekki látið uppskátt um hvernig hann greiðir atkvæði á laugardag, svo Hringbraut sé kunnugt.