Ritstjóri stundarinnar situr fyrir dómi

Við sitjum núna fyrir dómi til að reyna að verjast, eftir á, fyrirbyggjandi valdbeitingu sem snýst um að þagga niður og refsa fyrir frásagnir til almennings af því hvernig áhrifamestu aðilar samfélagsins fara með vald og auð. Hagsmunirnir sem valdbeitingin gætir snúa fyrst og fremst að Engeyjarættinni og núverandi fjármálaráðherra, formanni stærsta og valdamesta stjórnmálaflokks landsins. En ekki bara það. Þetta snýst um almennt frelsi fólks til að vita, eða þess í stað frelsi þröngs hóps til að nýta sér séraðstöðu sína í eiginhagsmunaskyni á kostnað annarra og almannahagsmuna án þess að aðrir megi vita eða segja megi frá því.

Við sem erum fyrir dómi núna skiptum ekki öllu máli, en það skiptir öllu máli að verja samfélagslegt frelsi okkar allra til að vita og tryggja möguleikann á því að geta takmarkað misnotkun elítu á aðstöðu sinni, aðstöðu sem veitt er í umboði almennings.

Ef ekki má segja frá vafasömu athæfi valdamesta manns landsins við rofin mörk viðskipta og stjórnmála og viðskiptafléttum áhrifamestu fjölskyldu landsins er restin sjálfkrafa töpuð. Þá geta bankar og yfirvöld nánast alltaf mætt fyrirvaralaust á staðinn til að knýja á um þöggun með valdi.

Persónuvernd er ætluð til að tryggja almannaheill, hagsmuni okkar allra. Dómsmálaráðherra hélt nýlega ræðu yfir dómurum landsins um að ekki eigi að vera til neitt sem heitir opinber persóna, sem þýðir að fjalla eigi um forsætisráðherra og viðskipti hans með sama hætti og um Sigurð Jónsson leigubílsstjóra, eða beita annars harðari refsingum. Nú er verið að nota persónuvernd, sem á að verja almannahagsmuni, til að gæta sérhagsmuna valdafólks á kostnað frelsis almennings til að vita.

Ef við megum ekki vita höfum við verið svipt grundvallarréttinum og -möguleikanum til að taka afstöðu. Almenningur verður þannig smám saman gerður ófær um að verja hagsmuni sína.

Ef þetta er niðurstaðan af reglum samfélagsins þarf almenningur að beita takmörkuðum réttindum sínum og völdum til að breyta reglunum svo þær verji okkur sem heild gegn valdbeitingu í þágu sérhagsmuna.