Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hæðist að völvuspá DV í nýrri færslu á eigin fésbók en þó er þungur broddur í skrifum ritstjóransog varða eigenda- og ritstjóraskiptin í fyrra.
Haldið hefur verið fram á opinberum vettvangi að Eggert Skúlason, ritstjóri DV, hafi sjálfur samið spána í ár. A.m.k. er ekki talið líklegt að spá væri birt sem ekki félli að ritstjórnar- og eigendavaldi DV.
Þórður Snær skrifar:
„Völva DV: Mjög vont ár framundan hjá stjórnarandstöðunni, Píratar missa fylgi, Árni Páll hættir og Steingrímur J. lendir í skandal. Björt Framtíð hættir að vera til. Gott ár hjá ríkisstjórnarflokkunum. Sigmundur Davíð styrkir stöðu sína og fleiri munu elska hann á næsta ári en færri hata hann. Og Ólafur Ragnar verður áfram forseti. Meirihlutinn í Reykjavík verður í stanslausu veseni og lendir í skandal. Ár hnignunar hjá RÚV en Eyþór Arnalds verður gerður að útvarpsstjóra og reddar málunum (mun blómstra samkvæmt DV). Fréttatíminn tekur yfir Stundina og Kjarnann vegna þess að þeir eru svo mikið drasl, en Fréttatíminn er líka drasl. Rekstur 365 og Moggans verður þungur. En DV er geðveikt og skilar hagnaði.“
Ekki kemur orðið óskhyggja fyrir í skrifum ritstjóra Kjarnans en ljóst virðist sbr ofangreint að hann telji hana svífa yfir vötnum hjá DV með spánni. Svo heldur hann áfram:
„Jón Ásgeir vinnur mál fyrir útlenskum dómstól og veitir öllum hrunfórnarlömbunum (úr bönkunum) uppreist æru. Forseti Hæstaréttar þarf að draga sig í hlé vegna þess að Hæstiréttur er svo mikið drasl (enda búinn að fremja svo mörg dómsmorð á bankamönnum) og hneykslismál eyðileggja sérstakan saksóknara. „Símon grimmi verður í essinu sínu“ (beint kvót). Skattrannsóknarstjóri er drasl.
Semsagt: Völvan staðfestir svona sirka allt sem fólk hafði áhyggjur af þegar eigendaskipti urðu á DV.“