Ritstjóri Kjarnans gerir kauptilboð í Morgunblaðið

Fyrr í dag birtist á Hringbraut frétt um að tónlistarmaðurinn og pólitíkusinn Eyþór Arnalds eigi hlut í Morgunblaðinu. Hlutur hans í Morgunblaðinu hefur verið milli tannanna á fólki en lengi vel var Eyþór stærsti hluthafinn.

„Hlutur minn í Mogganum hefur rýrnað á hverju ári, því miður. Ég átti þennan hlut áður en ég fór í borgarpólitíkina en um leið og ég fór þangað sagði ég mig úr stjórn Árvakurs og hef engin afskipti þar. Hlutur minn hefur verið til sölu en það er lítil eftirspurn enda afkoman neikvæð. Aðalatriðið er að þegar fólk er með hagsmuni sé það uppi á borði. Þessi hlutur er verst geymda leyndarmálið í íslenskri pólitík enda margskráður,“ segir Eyþór.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, býðst til að kaupa hlutinn af Eyþóri fyrir eina krónu. „Ég er til í að kaupa þennan hlut í Mogganum af Eyþóri á það sama og hann borgaði fyrir hann plús eina krónu. Þe á eina krónu. Hann getur sent mér samningsdrög í dm," skrifar hann í færslu á Twitter.