„Á tímum alheimsfaraldurs þar sem ástandið í Eyjum hefur verið sérstaklega tvísýnt hóf Páll Magnússon alþingismaður páskahátíðina með því að segja upp áskrift að Eyjafréttum og senda undirrituðum í leiðinni kaldar kveðjur,“ segir Sindri Ólafsson, ritstjóri Eyjafrétta, í pistli sem hann birti á miðlinum í dag.
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sendi honum opið kvörtunarbréf í vikunni, þar sem hann sakaði Sindra um að láta persónulega óvild sína í garð bæjarstjóra Vestmannaeyja bitna á upplýsingaskyldu miðilsins til Eyjamanna.
„Páll Magnússon ræður svo sem auðvitað hvort hann kaupir áskrift að blöðum eða hvort hann segir upp áskrift. Það er hins vegar gróf ásökun og staðlaus að ég þjáist af „persónulegri óvild“ í garð bæjarstjórans. Ásökun þingmannsins vísa ég til föðurhúsanna. Páll Magnússon þingmaður og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri nota ýmis tækifæri til þess að rýra trúverðugleika minn sem ritstjóra og miðilsins en það hefur aldrei bitnað á aðgengi þeirra að miðlinum. Allt sem þau hafa sent til birtingar hefur fengið birtingu,“ segir Sindri.
„Nú er það svo að tilkynningum frá almannavarnayfirvöldum, bæjaryfirvöldum og fleirum hefur rignt inn til okkar á Eyjafréttum undanfarna daga og vikur, eðlilega. Að sjálfsögðu höfum við birt þær. Við biðjumst ekki afsökunar á því að ein og ein facebookfærsla birtist ekki hjá miðlinum. Degi seinna eru önnur mál komin á dagskrá. Það er bara eins og gengur og óþarft að rifja upp fyrir sjóuðum manni í fjölmiðlastarfi.“ Hann segir þá athugavert að Páll hafi mætt í hádegisfréttir RÚV í gær og lýsa yfir áhyggjum sínum af stöðu einkarekinna fjölmiðla.
„Þá vekur tímasetningin á þessu upphlaupi Páls Magnússonar sérstaka eftirtekt. Mér þykir forgangsröðun þingmannsins hreint ótrúleg þegar íslenskt samfélag er að takast á við ótrúlega erfiðleika, bæði heilsufarslega og efnahagslega. Atvinnulífið stendur í gríðarlegri varnarbaráttu og stefnir t.d. í allt að 25% atvinnuleysi á svæðum innan Suðurkjördæmis. Undir þeim kringumstæðum ákveður oddviti kjördæmisins að taka þennan slag. En það flýgur jú hver eins og hann er fiðraður.“
„Þá vekur tímasetningin á þessu upphlaupi Páls Magnússonar sérstaka eftirtekt. Mér þykir forgangsröðun þingmannsins hreint ótrúleg þegar íslenskt samfélag er að takast á við ótrúlega erfiðleika, bæði heilsufarslega og efnahagslega. Atvinnulífið stendur í gríðarlegri varnarbaráttu og stefnir t.d. í allt að 25% atvinnuleysi á svæðum innan Suðurkjördæmis. Undir þeim kringumstæðum ákveður oddviti kjördæmisins að taka þennan slag. En það flýgur jú hver eins og hann er fiðraður,“ segir Sindri svo að lokum.