Ritstjóri dv er í panama-skjölunum

\"Ég greiddi skatta og skyldur af tekjum og málið hefur verið full rannsakað af þar til bærum yfirvöldum,“ segir Eggert Skúlason, ritstjóri DV í samtali við eigin fjölmiðil.

Upplýst var í sjónvarpsþætti í sænska Ríkissjónvarpinu í gærkvöld, Uppdrag Granskning, að Eggert Skúlason, ritstjóri DV, er í Panamaskjölunum. 

Finnur Ingólfsson, Róbert Wessmann, Eggert Skúlason og Bogi Pálsson eru á meðal þeirra sem koma við sögu. Eyjan segir frá.

Í fyrstu siðareglu blaðamanna hjá Blaðamannafélagi Íslands segir: \"Blaðamaður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt gæti álit almennings á starfi blaðamanns eða skert hagsmuni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga.\"

Þá segir í 5. grein siðareglna: \"Blaðamaður varast að lenda í hagsmunaágreiningi, til dæmis með því að flytja fréttir eða frásagnir af fyrirtækjum eða hagsmuna- samtökum þar sem hann á sjálfur aðild.\"