Ritstjóri: atvinnurógur þingmanns

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisfloksins, virðist umtalaðasti þingmaður augnabliksins. Deila hans og Björns Vals Gíslasonar hefur vakið athygli þar sem Ásmundur kallar Björn Val \"óþverra\" en hann hefur einnig í dag brugðist við grein þar sem Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri á Kjarnanum, fjallaði um rasisma og tengdi að hluta við Ásmund og þær skoðanir sem þingmaðurinn hefur sett fram.

Í grein Ásmundar sakar hann Þórð Snæ um að vera úlfur í sauðagæru, hans erindi sé annað en blaðamanna. Þórður Snær hefur nú brugðist við ásökunum Ásmundar og segir að þingmaðurinn viðhafiu atvinnuróg gegn sér og klykki svo út með því að kalla ritstjórann „rasista umræðunnar“.

„Ég segi að greinin sé áhugaverð vegna þess að hún er skólabókardæmi um málflutning sem kjörinn fulltrúi getur ekki leyft sér að bera á borð. Við sem hann starfar fyrir þurfum að geta gert strangari kröfur til þeirra en það sem Ásmundur býður upp á. Og ég vona að Ásmundur muni einhvern tímann átta sig á því.“

Ásmundur gaf Þórði Snæ þá einkunn að skrif hans væru: „Aumkunarverður og röklaus málflutningur reiða mannsins sem elur á hatri og afbrýðisemi út í náungann. Skrifin Þórðar Snæs eru aldrei uppbyggileg. Þau eru flest þannig gerð að þau ýta undir úlfúð og andúð. Af hverju leggur hann ekki metnað í að vera með upplýsandi umræðu sem dregur fram mismunandi sjónarmið? Af hverju er metnaður “ritstjórans” ekki meiri í þá átt?“

Þórður Snær segir alvarlegt þegar þingmanni finnist hann vera í stöðu til að segja fjölmiðli að hann eigi ekki að gagnrýna. „Það ýti undir úlfúð og andúð. Síðan beinir þingmaðurinn okkur á þær brautir sem hann telur að fjölmiðlaumfjöllun ætti að á vera þannig að hún geti betur fallið að hans skoðunum og manngerð.

Ljóst er að Ásmundi finnst ekki mikið til þess sem hann kallar bloggfjölmiðla koma. Hann kallar mig „ritstjóra“ innan gæsalappa og finnst við augljóslega vera annars flokks fjölmiðlafyrirbæri. Hann skilgreinir reyndar ekki hverjir falla undir þennan hatt og hverjir teljast alvöru fjölmiðlar með ritstjórum sem þurfa ekki að vera innan gæsalappa. En hann er frjáls að þessari skoðun þótt að áhugavert væri fyrir okkur sem vinnum á Kjarnanum, og erum með samanlagða áratuga reynslu af því að vinna á fjölmiðlum, að fá kennslu í grunnatriðum fagsins frá Ásmundi, sem hefur aldrei starfað á slíkum og hefur nú opinberað gjörsamlega vanþekkingu á eðli þeirra.“


Síðar skrifar Þórður Snær: „Það sem er alvarlegt við grein Ásmundar, og ég vona að hann og samstarfsfólk hans í stjórnmálum geri sér grein fyrir eftir á, eru þær ávirðingar og sá rógur sem hann setur síðan fram.\"

Hann vitnar til skrifa Ásmunds: „og bloggarar eins og Þórður Snær, sem kalla sig fjölmiðlamenn en eru í raun þátttakendur í stjórnmálum, hann er úlfur í sauðagæru. Þórður Snær og hans líkir hafa þann eina tilgang að fæla fólk frá umræðunni og hafa þannig áhrif á viðhorf almennings“ og segir:

„Fyrst er vert að benda þingmanninnum á að eignarhald, ritstjórnarstefna og aðrar hagsmunaupplýsingar eru skráðar hjá opinberri stofnun sem heitir Fjölmiðlanefnd, og var sett á fót af Alþinginu sem hann situr á. Þar getur Ásmundur séð allar upplýsingar sem hann vill um eigendur Kjarnans og annarra fjölmiðla. Hér er hlekkur þangað sem þingmaðurinn getur nýtt sér í þeirri þekkingarleit. Pólitískir hagsmunir eða tengsl Kjarnans, þeirra sem starfa á honum og stýra, eru engir. Allar aðrar upplýsingar um okkur eru aðgengilegar á heimasíðu miðilsins og ég er auk þess boðinn og búinn að veita allar viðbótarupplýsingar sem þingmaðurinn óskar eftir til að tryggja honum friðsælan nætursvefn.

Augljós tilgangur Ásmundar er að gefa í skyn að Kjarninn, og ég sérstaklega, séum ekki að stunda fjölmiðlun til að upplýsa lesendur og veita valdastofnunum samfélagsins aðhald heldur til þess að ganga erinda einhverra ónefndra stjórnmálaafla í sauðagærunni. Þetta er auðvitað vel þekkt aðferð þeirra sem geta ekki tekist málefnalega á. Þá ráðast þeir að einstaklingunum sem setja fram andstæða skoðun eða fjölmiðlinum sem þeir vinna hjá. Maður, bolti og allt það.

Á öðrum stað í grein sinni segir Ásmundur að ef „einhver er með aðrar skoðanir en vinstraliðið í skotgröfunum þá eru viðkomandi úthrópaður, umræðan kölluð hatursumræða og fólk stimplað rasistar.“ Ef Ásmundur ætlar sér að flokka alla sem vinstri menn sem hafa lýst því yfir á opinberum vettvangi að þeir séu honum ósammála þá er hann að lýsa þeirri skoðun að formaður Sjálfstæðisflokksinsvaraformaður hans og nýkjörinn ritari séu allt vinstralið í skotgröfum. Öll hafa þau nefnilega gagnrýnt Ásmund fyrir ummæli sín og skoðanir á innflytjendamálum á opinberum vettvangi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, sagði að það væri átakanlegt að vera í sama flokki og Ásmundur.“

Svo heldur Þórður Snær áfram: „Ég held að stærsta vandamál Ásmundar sé það að hann skilur ekki gagnrýnina sem sett er fram á hann. Hann virðist ekki skilja að hann sem þingmaður þarf að rökstyðja skoðanir sínar með öðru en því sem hann segist hafa heyrt hjá óskilgreindum almenningi eða tilfinningum sem hellast yfir hann þegar hann sér fréttir um voðaverk sturlaðra manna í útlöndum. Ásmundur er frjáls að skoðunum sínum. En hann verður að geta sætt sig við að slíkar skoðanir séu gagnrýndar þegar þær eru jafn illa undirbyggðar.

Ásmundur má vísa ummælum mínum um að hann sé rasisti til allra þeirra föðurhúsa sem hann finnur. Það breytir því ekki hver skilgreiningin á hugtakinu rasisti er. Ég er þeirrar skoðunar að það nái vel yfir skoðanir hans Ásmundar Friðrikssonar og hef nú rakið það tvívegis í nokkuð löngu máli. Honum finnst ekkert varið í það að vera kallaður rasisti.

Svo verður hver og einn bara að meta hvor okkar honum finnst hafa rétt fyrir sér,\" endar ritstjórinn og blaðamaðurinn Þórður Snær grein sína á.