Það er ekki komið að tómum kofanum hjá þeim Jóni Sigurðssyni og Svavari Gestssyni í ritstjórahluta fréttaþáttarins 21 í kvöld, en þessir tveir fyrrverandi ritstjórar Tímans og Þjóðviljans - og ráðherrar á sinni tíð - tala enga tæpitungu frekar en vanalega.
Umræðuefni kvöldsins eru vendingar í kvótamálum sem æ fleiri vilja losa úr klóm auðvaldsins, möguleg sala á að minnsta kosti öðrum ríkisbankanum, kjarabarátta Eflingar og vandræði stjórnvalda með Mannréttindadómstól Evrópu sem stöku pólitíkusar - og fleira gott fólk - segja ógna fullveldi landsins - og hér grípur Svaavar inn í: \"... stjórnvalda, þetta er nú bara Sjálfstæðisflokkurinn - og þetta tal hans um dómstolinn er nú óttalegt jarm í íhaldinu.\" Og Jón grípur boltann á lofti: \"... til heimabrúks, svona til að hjálpa flokknum innanfrá ...\"
Það verður ekki mjálmað í þessum þætti sem hefst klukkan 21:00.