Það gneistar á milli gesta fréttaskýringaþáttarins Ritstjóranna á Hringbraut í kvöld, en þar er meðal annars tekist á um fréttagildi úttektar Stundarinnar á fjárhagsgjörningum Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra í aðdraganda hrunsins.
Óhætt er að segja að Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar og Stefán Einar Stefánsson, aðstoðarfréttastjóri ViðskiptaMoggans séu ekki á eitt sáttir um skrif Stundarinnar um Bjarna, en sá fyrrnefndi heldur því staðfastlega fram að úttekt fjölmiðilsins sýni fram á að Bjarni hafi að minnsta kosti verið tvísaga í frásögn sinni af færslu eigin peninga á milli sjóða á haustdögum 2008 og hvaða trúnaðarupplýsingum hann bjó yfir á þeim tíma. Stefán Einar segir aftur á móti að Bjarni hafi margsinnis greint frá því hvernig hann hafi hagað þar málum - og ekkert nýtt komi fram í úttekt Stundarinnar sem forsætisráðherrann þurfi að útskýra frekar.
Þeir líta svo yfir pólitíska sviðið í seinni hluta þáttarins og ræða líkurnar á vinstri stjórn og hægri stjórn, ellegar stjórnarsamstarfi þvert yfir litróf íslenskra stjórnmála, sem hvorki formaður Sjálfstæðisflokks né formaður Vinstri grænna útiloka.
Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.