Ætlaðar arðgreiðslur tryggingafélaganna voru helsta umræðuefni Ritstjóranna á Hringbraut í gærkvöld en þær hafa heldur betur stolið fréttasviðinu síðustu dægur og virðast stjórnir félaganna ekki hafa bitið úr nálinni með þessa umdeildu ákvörðun sína.
Mikil reiði virðist vera í samfélaginu vegna málsins, en samtals ætla félögin að greiða eigendum sínum á tíunda milljarð króna í arð vegna slaka í reglum um bótasjóði félaganna. Það er sumsé ekki betri rekstur sem er frumlag þessarar ákvörðunar heldur breytt regluverk - og spurning, altént að mati FÍB, hvort kúnnarnir eigi ekki sinn skerf af kökunni at arna. Og svo er það líka enn ein spurnjngin hvort ríkið eigi að gjalda fyrir lélegan rekstur félaganna, en eigendurnir alltaf að njóta ábatans.
Mikill þrýstingur er á stjórnir félaganna að draga til baka þessa ákvörðun um arðgreiðslur, ekki síst á stjórn VÍS sem vill útdeila fimm milljörðum til sinna eigenda, ekki síst lífeyrissjóða, en úr þeim ranni berast einmitt miklar efasemdarraddir um gerninginn.
Þær Eyrún Magnúsdóttir, umsjárkona Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins og Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar ræddu þessa uppákomu við Sigmund Erni í þætti gærkvöldsins, sem sjá má hér á vef stöðvarinnar, en báðar orða það svo stjórn VÍS geti ekki gert annað en sagt af sér ef hún verður gerð afturreka með þessa ákvörðun sína, sem að sögn hennar og Steingerðar minnir á að græðgin er enn söm við sig, jafnvel enda þótt konur rísi til meiri áhrifa innan þessara félaga og stjórna þeirra en nokkru sinni áður.
Forsetaframboð og ferðamannastraumur án framkvæmdagleði stjórnvalda eru líka til umræðu í þessum þætti Ritstjóranna, en hvað það fyrrnefnda snertir eru ritstjórarnir sammála um að nú sé aðeins beðið eftir einu, altso ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur; örlög annarra frambjóðenda ráðist af ákvörðun hennar, af eða á.
Ritstjórarnir verða endursýndir í dag og um helgina, en sem fyrr segir er einnig hægt að sjá þá inni á vef stöðvarinnar, svo sem eins og alla aðra þætti Hringbrautar.