Það er heldur betur nóg um að tala í Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem þeir Ingimar Karl Helgason og Jón Trausti Reynisson láta gamminn geysa um helstu fréttamál líðandi stundar.
Spurningin er kannski þessi: Eru trommukjuðarnir komnir á loft og byrjað að tala þjóðina til bjartsýni; hér sé allt í glimrandi góðu standi - og óþarfi að vera með þetta eilífa nöldur? Já, sjáiði ekki veisluna - tilraun tvö?
En þetta er ekki eina umræðuefni þáttarins í kvöld: Aflandshugsanahátturinn verður ræddur í þaula ásamt daufri kosingabaráttu þar sem spennan snýst að mestu um annað og þriðja sætið, jafnvel það fjórða.
Þá er spurt hvort Morgunblaðið hafi verið mosnotað í kosningabaráttunni síðustu vikur - og af hverju Steingrímur J. Sigfússon geti ekki hætt í pólitík.
Ritstjórarnir eru frumsýndir klukkan 21:30 í kvöld.