Ritstjórarnir sálgreina framsókn

Hádramatísk uppfærsla framsóknarmanna á seinni tíma Sturlungu verður greind í þaula í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld, en þar setjast Hallgrímur Thorsteinsson, stjórnandi Helgarútgáfunnar á Rás 2 og Kolbrún Bergþórsdóttir, ritstjóri DV í stólana gegnt Sigmundi Erni.

Þetta þaulreynda fjölmiðlafólk mum velta fyrir sér möguleikum Framsóknar á næstu vikum og hugsanlegum örlögum Sigmundar Davíðs sem tapaði formannskosningunni með naumindum fyrir forsætisráðherranum Sigurði Inga Jóhannssyni eftir frækinn sigur sinn í heimakjördæminu fyrir norðan, en margir héldu að sá sigur yki líkurnar á sigri Sigmundar Davíðs um helgina.

En enda þótt Framsókn hafi átt sviðið síðustu vikur í íslenskri pólitík fá aðrir stjórnmálaflokkar pláss í greiningu þáttarins, jafnt hægra og vinstra megin á litrófi íslenskra stjórnmála, en sóknarfæri þeirra og veikleikar verða metnir af viðmælundunum þegar einungis tæpur mánuður er til þingkosninga.

Ritstjórarnir eru á dagskrá Hringbrautar kl. 21:30 í kvöld.