Ritstjórarnir rýna í kvennabaráttuna

Í þættinum Ritstjórunum á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar í kvöld verða kvenréttindamálin fyrirferðarmikil enda líður nú vika mikilla hátíðarhalda í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi.

Gestir þáttarins að þessu sinni eru Atli Fannar Bjarkason ritstjóri Nútímans, Jónas Haraldsson ritstjóri Fréttatímans og Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Vikunnar. Þeirri síðastnefndu er tíðrætt um það í þættinum að kynbundinn launamunur virðist ekki einasta vera óyfirstíganlegur í samfélaginu heldur eigi það ekki síður við um kynbundið ofbeldi. Jónas nefnir þó að mikið hafi áunnist í kvenréttindabaráttunni frá því um dagsbrún síðustu aldar. Sjálfur hafi hann lítt kunnað til heimilisstarfa þegar hann hafi hafi búskap, á heimilum sona hans og dætra sé verkaskiptingin hins vegar jöfn og í huga barnabarna hans sé annað óhugsandi en báðir foreldrar taki jafnan þátt í uppeldi, húsverkum og atvinnulífinu. Atli Fannar bendir á að mikil virkni alls unga fólksins einkenni samfélagið í dag og sífellt meiri lýðræðisvakning þess hjálpi þessari réttindabaráttu mjög mikið; samfélagsmiðlarnir séu að gera út af við gamla staðnaða karlrembusamfélagið en þess í stað sýni þeir jafnréttissinnaða, vel upplýsta og fordómalausa kynslóð vaxa úr grasi og koma sér út á meðal annars fólks í þjóðfélaginu.

Í þættinum, sem er á dagskrá klukkan 21:30 í kvöld er einnig komið inn á stöðnuð vinnumarkaðsmódel, fjöldauppsagnir og afrek nýjasta rokkara landsmanna sem ber ef til vill sviðsnafnið G. B. Sveinsson, en þar er utanríkisráðherra þjóðarinnar á ferðinni með lag sitt Hvar er kjarkurinn?