Ritstjórarnir rýna fréttir á hringbraut

Ritstjórarnir er heiti nýs sjónvarpsþáttar sem hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld, en þar munu ritstjórar litlu fjölmiðlanna á Íslandi setjast á rökstóla og ræða og rýna þær fréttir sem eru efst á baugi og meta frammistöðu þess fólks sem helst og mest er í fréttum hverju sinni.


Gestir þáttarins í kvöld verða Eggert Skúlason ritstjóri DV, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri Stundarinnar og Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans. Auk þeirra munu á næstu vikum birtast í þættinum ritstjórar Fréttatímans, Herðubreiðar, Nútímans og Viðskiptablaðsins.


Umsjármaður þáttanna er ritstjóri Hringbrautar, Sigmundur Ernir Rúnarsson sem í kvöld mun meðal annars fjalla um Illugamálið, vilja ráðherra til aukinna bónusa í bankakerfinu, fjármálahöftin, kvótavanhæfi, hatursumræðu, kjaradeilurnar, "útvarpið okkar" og veðrið sem gárungarnir segja að sé þess eðlis að vor og haust muni frjósa saman.


Þátturinn er frumsýndur klukkan 21:30 í kvöld og er hálftíma langur. Hann kemur í stað Neytendavaktarinnar sem var á dagskrá Hringbrautar á þessum tíma, en sá þáttur er kominn í pásu um hríð. 


Horfa á klippur úr þætti kvöldsins