Ritstjórarnir: davíð nær þessu varla

Hvorri hliðinni mun Davíð Oddsson snúa að þjóðinni í kosningaslagnum fram undan, hinum sjarmerandi sagnameistara eða herskáa stjórnmálarefnum? Þetta var ein meginspurninga í þjóðmálaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld.

Það voru þau Andri Ólafsson, ritstjóri Íslands í dag á Stöð 2 og Eyrún Magnúsdóttir, umsjárkona SunnudagsMoggans sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni að þessu sinni og mátu líkurnar á að Davíð Oddsson gæti lagt Guðna Th. Jóhannesson að velli - og hvort aðrir frambjóðendur, svo sem Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir myndui hagnast á höfuðslag þeirra fyrrnefndu. Andri kvaðst vera þeirrar skoðunar að Davíð ætti ekki möguleika, en bæði töldu að ekki bæri að vanmeta þann vana baráttumann sem Davíð væri, en hann kynni jú öll trixin í bókinni og væri vís með að koma Guðna í þau vandræði sem hann ætti erfitt  með að snúa sér út úr.

Í þættinum var vandi Samfylkingarinnar greindur í þaula, svo og fylgissveifla Sjálfstæðisflokksins sem virðist ekki gjalda fyrir aflandsumræðuna, ólíkt Framsóknarflokknum, kannski vegna þess hversu vel Bjarni Benediktsson virðist höfða til frjálslyndra kjósenda á einkaframtaksbásnum, en formaðurinn þykir hafa haldið vel á spilum sínum á kjörtímabilinu og ekki farið á taugum framan við myndavélarnar eins og sumir hverjir sem skamma fjölmiðilinn í stað þess að tala í gegnum hann til fólksins. .

Þá var spurt hvort Sigmundur Davíð ætti afturkvæmt í stjórnmálin og gæti náð þar fyrri vopnum sínum, en þau Andri og Eyrún voru á því að hann gæti vel stimplað sig inn í slaginn að nýju, en þá örugglega í öðru kjördæmi en Norðausturkjördæmi - og loks var rætt um mögulegan sumarskandal í ferðaþjónustunni þar sem innviðirnir hafa svo að segja alveg gleymst í verklitlu ráðuneyti ferðamála.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:15.